Alda fasteignasala og Ingi Þór Lögg. fasteignasali kynna: Hrísateigur 1, 641 Húsavík, Fimm herbergja, 169fm einbýli á einni hæð með bílskúr í um 10 mín akstursfjarlægð frá Húsavík, Þingeyjasveit.
Eign skiptist í: forstofa, Gangur, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, stofa/borðstofa, eldhús, þvottahús, geymsla og bílskúr.Nánari lýsing: Komið er inn forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. á gangi er parket. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, stórum sturtuklefa, handklæðaofni og ágætri vaskainnréttingu. Svefnherbergi eru fjögur, gólfefni eru dúkur og plastparket. Í Hjónaherbergi eru rúmgóðir fataskápar með rennihurðum. Stofa/borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi, gengið er út á skjólgóða timburverönd með innfelldum hitaveitupotti úr stofu. ágæt geymsla er á verönd. Eldhús er með stórri, viðarlitaðri, U laga innréttingu með dökkri bekkplötu, bakaraofni í vinnuhæð, helluborði, gufugleypi. Á gólfi í eldhúsi eru flísar. Inn af eldhúsi er þvottahús/geymsla með bakdyra inngang af bílastæði, með flísum á gólfi og bekkplötu undir þvottavél. Bílskúr er rúmgóður, eitt opið rými með innkeyrslu og gönguhurð, án gólfefna og veggir grófpússaðir. Einnig er gönguhurð sem liggur út á verönd í bakgarði. Bílaplan framan við bílskúr er steypt. Sérlega stór og gróin baklóð sem talsverður metnaður hefur verið settur í á sínum tíma. Vel skipulagt fimm herbergja hús í rólegu, sex húsa hverfi í um 5-10 mín aksturs fjarlægð frá Húsavík.
Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór Lögg. fasteignasali. [email protected]/6984450.